BÆKUR
En margt er það annað, sem Jesús gjörði, og yrði það hvað eina upp skrifað, ætla ég, að öll veröldin myndi ekki rúma þær bækur, sem þá yrðu ritaðar. Hér fyrir neðan er hægt að kaupa nokkar af þeim bókum sem hafa um hann verið skrifaðar!
Come Away My Beloved
Þessi áhrifamikla bók er skrifuð eins og Guð sé að tala beint til þín í gegnum stutta og hnitmiðaða texta. Bók sem hægt er að opna hvar sem er og fá sem gefa hvatningu, von, huggun og sannfæringu.
Höfundur: Frances J. Roberts
The hidden power of prayer & fasting
Guð hefur veitt leið til að breyta ósigri í sigur – og brjóta niður djöfuleg vígi í gegnum kærleika og kraft Guðs
Hvort sem árásin er líkamleg, fjárhagsleg eða fjölskylduþrenging, hefur höfundurinn Mahesh Chavda sigrað í gegnum þessar árásir til að sjá kraft Guðs vinna allar orrustur.
Mahesh Chavda lifir lífsstíl bæn og föstu. Hann mun hvetja þig til að berjast í góðri baráttu því hann veit að Guð hefur þegar gefið þér lausnina. Komdu með dýrð Hans inn í líf þitt, kirkjuna þína, borgina þína og þjóðina þína í gegnum hina leyndu krafta bænar og föstu.
Fasta er alvöru mál hjá Guði – hún breytir öllu.
Höfundur: Mahesh Chavda
Angels on Assignment
Í þessari áhugaverðu bók lýsir Roland Buck persónulegum kynnum sínum af englum og því sem Biblían segir okkur um þessa boðbera Guðs. Þú munt komast að því hvernig boðberar Guðs hafa áhrif á þitt eigið líf og hvernig Guð mun nota engla til að hjálpa í lokavakningunni.
Höfundur: Roland Buck
The Final Quest Trilogy
Hvað ef ein opinberun gæti breytt örlögum þínum á augnabliki? Í þessari hrífandi metsöluseríu tekur rithöfundurinn Rick Joyner þig með í yfirnáttúrulega ferða sem hefur heillað milljónir. The Final Quest Trilogy er einstök andleg sýn á epíska baráttu ljóss og myrkurs.
Höfundur: Rick Joyner
Visions Beyond The Veil
Betlarar, útskúfuð og heimilislaus voru gleymdu ómenntuðu börnin í Kína þegar andi Guðs féll yfir munaðarleysingjahæli þeirra, Adullam heimilið. Drengirnir eyddu dögum á kröftugum samkomum, báðu og lofuðu Guð. Undir smurningu heilags anda spáðu þeir, sáu sýnir og uppgötvuðu hvernig englar starfa og vernda okkur, örlög vantrúaðra, framtíðarstarf okkar á himnum, hásæti Guðs, sanna tilbeiðslu, hvað gerist þegar við deyjum og hið illa.
Höfundur: H.A. Baker
Ég ætla að djamma þar til ég drepst (endurminningar)
Ívar Örn Katrínarson er einnig þekktur sem Dr. Mister úr hljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome. Þeir félagar gerðu garðinn frægann árið 2006 með plötunni “Dirty, Slutty, Hooker Money” sem innihélt þrjú lög sem fóru hæst á vinsældarlista útvarpsstöðva það árið. “Kocaloka”, “Is It Love” og “Boogie Woogie Sensation”. Eftir ár var bandið lagt niður sökum fíkniefnaneyslu Ívars Arnar og fór Ívar þá á fullt inn í undirheima Reykjavíkur, seldi dóp og handrukkaði í að ganga tvo áratugi. Fangelsi, glæpir, ofbeldi, hörð neysla og harmleikurinn í kringum það er meðal annars það sem kemur fram í þessari bók. En þrátt fyrir alvarleika sögunnar er samt aldrei langt í húmorinn, sem gerir þessa bók ekki bara áhugaverða heldur skemmtilega. Einlæg nálgun Ívars á því hvernig hann hefur unnið úr sínum málum gerir þessa bók líka mikilvæga á dögum sem þessum, þar sem aldrei áður hafa eins margir misst lífið í baráttunni við fíkniefnadjöfulinn.
Höfundar: Ívar Örn Katrínarson
Sonur Hamas
Sönn og sláandi frásaga af innherja Hamas samtakanna sem hafnaði örlögum ofbeldis og leggur nú allt í sölurnar til þess að fletta ofan af vel varðveittum leyndarmálum og sýna heiminum leið til friðar.
“HAMAS, eitt sinn hið ríkjandi afl meðal Palestínumanna, var nú í óreiðu. Beisk samkeppni þessara brotnu samtaka um hjarta og huga fólksins hafði tekið allt yfir. Í gegnum leynimakk og samningagerð höfðu yfirvöld Palestínu náð fram því sem Ísrael hafði ekki náð fram í krafti sínum. Þau höfðu eyðilagt hernaðararm Hamas og varpað leiðtogum og stríðsmönnum samtakanna í fangelsi. Jafnvel eftir að þeim var sleppt, fóru Hamasliðar heim og gerðu ekkert meira gegn PA eða hersetunni. Hinir ungu feda´iyeenar voru úrvinda. Leiðtogar þeirra voru sundraðir og höfðu miklar grunsemdir út í hver annan. Faðir minn var aftur einn á báti, þannig að hann snéri aftur til starfa í moskunni og flóttamannabúðunum. Þegar hann talaði núna, gerði hann það í nafni Allah en ekki sem leiðtogi Hamas. Eftir mörg ár aðskilnaðar vegna fangavistar okkar nýtti ég mér tækifærið til þess að ferðast og verja tíma með honum á ný.”
Höfundar: Mosab Hassan Yousef og Ron Brackin
Þýðandi: Sigurður Júlíusson
The pursuit of god
Nálægðu þig heilögum mönnum og konum fortíðar og þú munt fljótlega smitast af þrá þeirra eftir Guði. Leyfðu leit A. W. Tozer að Guði hvetja þig til ósvikins hungurs og þorsta til að þekkja Guð í raun og veru.
Höfundur: A.W. Tozer
The Power to Change the World
Merkileg saga af velsku og Azusa Street vakningunum, einstökum endurvakningum kirkjusögunnar. Þessi bók kannar hvernig þessar vakningar voru tengdar saman og hvernig þær að lokum tengjast því sem koma skal – uppskerunni í lok aldarinnar.
Höfundur: Rick Joyner
The Life oF william Branham
Gordon Lindsay skrifaði: „Sagan af lífi William Branham er svo út úr þessum heimi og umfram venjulegt að ef ekki væri til fjöldi óskeikulra sönnunargagna sem staðfesta áreiðanleika hennar, væri líklega mjög fáir sem myndu trúa því sem átti sér stað.
Höfundur: Owen Jorgensen
The Life and Ministry of A.A. ALLEN
Bók hlaðin af hinu yfirnáttúrulega. A.A. Allen var ekki bara kröftugur predikari heldur einnig maður helgunar og lækninga. Einstök frásaga af lífi sem liftir upp trú þinni að Guð sé raunverulegur og gerir enn kraftaverk.
Höfundur: John W. Carter, Jr.
Daugther of Destiny
Það er ómögulegt að skrifa um Kathryn Kuhlman án þess að skrifa um Guð. Líf hennar var fólgið í Guði. Á mjög raunverulegan hátt var hún dóttir örlaganna. Útvalin og helguð af Guði fyrir hans þjónustu, þar sem enginn skortur var á kraftaverkum og lækningum.
Höfundur: Jamie Buckingham
Diary of God´s General
Þessi spennandi frásögn af mörgum ævintýrum John G. Lake hefst með kraftaverkalækningum fjögurra fjölskyldumeðlima hans. Þegar Lake skildi opinberunina um lækningamátt Jesú, ferðaðist hann um heiminn og boðaði lækningaboðskap Guðs.
Höfundur: John G. Lake
Rees Howells Intercessor
Hvernig hafði trú og bænir auðmjúks kolanámumanns áhrif á gang seinni heimstyrjaldarinnar? Lestu um það í ævisögu Norman Grubb um Rees Howells, sem óx í trú þar til bænir hans höfðu áhrif á heimsviðburði.
Höfundur: Norman Grubb
Sister Aimee
Þegar hún svaraði hinni guðlegu köllun reis Aimee Semple McPherson hratt upp frá því að vera ófullnægð húsmóðir á Rhode Island í “kraftaverkakonu” – brautryðjanda, og frægðarstjörnu Drottins. Hún predikaði upp og niður Bandaríkin, ferðaðist á Packard 1912 með móður sinni og börnum og án karlmanns til að laga sprungin dekk.
Höfundur: Daniel Mark Epstein
The Practice of the presence of God
Bróðir Lawrence var auðmjúkur maður sem uppgötvaði mesta leyndarmál þess að lifa í ríki Guðs hér á jörðu. Það er listin að „velja nærveru Guðs öllum stundum“. Hann sagði oft að það væri Guð sem málar sjálfan sig í djúpum sálar okkar. Við verðum bara að opna hjörtu okkar til að taka á móti honum og kærleiksríkri nærveru hans.
Höfundur: Brother Lawrence
Ever Increasing Fath
Fyrir rithöfundinn Smith Wigglesworth var lífið stöðugt ævintýri. Með því að treysta Guði alltaf, jafnvel í vonlausum aðstæðum, hafði hann fullkomið traust á krafti Krists. Lestu um frásögur af frelsun frá sykursýki, berklum, andavaldi og jafnvel dauða. Með því að lesa þessa bók muntu sjá þegar fræ trúarinnar byrjar að stækka og vaxa í hjarta þínu. Sjáðu hvernig Guð starfar, snertir líf með lækningu og frelsun. Kraftaverk sem fylgja þeim sem trúa. Trú þín, hvort sem hún er stór eða smá, getur margfaldast sífellt meira þegar hún flæðir frá þér yfir til annarra og færir Guði dýrð og blessun til heimsins!
Höfundur: Smith Wigglesworth
Sonur Hamas
Verð 4.900 kr. stk.
*Sendingargjald innifalið í verði.
Við sendum þér pöntunina þína um leið og greiðsla hefur borist með millifærslu.
Greiðsluupplýsingar:
Reikningur: 0511-26-014958
Kennitala: 220881-3269