Að dæma eða ekki dæma?
Nú eru kosningar framundan á Íslandi og þá setjast margir í dómarasæti heima í stofu og rífa niður fólkið sem er að bjóða sig fram, þetta má ekki vera svona, því með þeim dómi sem þú dæmir munt þú dæmdur verða.
Efesusbréfið 4:29
Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gjörist, til þess að það verði til góðs þeim, sem heyra.
Secrets of the Kingdom
Neville Johnson var frábær kennari sem skildi eftir sig mikla arfleifð í formi kennslu sem kallast “Secrets of the Kingdom” eða “Leyndardómar Guðsríkisins”. Hver kennsla er stutt, hnitmiðuð og áhrifarík og ég hvet ykkur til að fara í gegnum allar kennslurnar til þess að vaxa hratt sem einstaklingar inn í ykkar köllun og útvalningu.
Ljós í myrkri
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þetta er ljósið í myrkrinu, fagnaðarerindið um lifandi Guð sem er kærleikur. Hann vill að allir verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum!
Greinar
Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.
Trúarhetjur
Bænarefni
Tölum saman
Trúarbænin
Ég trúi því að Jesús Kristur hafi dáið fyrir mig og að hann hafi risið upp frá dauðum. Jesús ég bið þig um að koma inn í hjarta mitt á þessu augnabliki og frelsa mig frá syndum mínum. Jesús ég býð þig velkominn inn í líf mitt og ég bið þig um að leiða mig héðan í frá. Ég bið þig að fylla mig af anda þínum, Heilagi Faðir, ég þakka þér að ég er nú þitt barn.